2 mar. 2011
Mynd: Sævar Logi Ólafsson Í kvöld urðu Hamarsstúlkur deildarmeistarar í Iceland Express-deildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins nú í kvöld. Þær tóku á móti KR í Hveragerði og þó að gestirnir hafi haft sigur þá varð það ljóst að þar sem Keflavík tapaði einnig að þá er Hamar deildarmeistari 2011. Ein umferð er enn eftir en það munar fjórum stigum á liði Hamars og Keflavíkur sem er í öðru sæti. Til hamingju Hamar.