26 feb. 2011
Í dag og á morgun er komið að Bikarúrslitum yngri flokka 2011 og fara úrslitin fram á Ásvöllum í umsjón Hauka. Sýnt verður beint frá öllum leikjum helgarinnar á [v+]http://www.haukar.is/haukar-tv [v-]Haukar-TV[slod-] og allir leikir verða í beinni tölfræðilýsingu á kki.is. Glæsileg umgjörð verður á öllum leikjum og hvetjum við sem flesta til að mæta og sjá skemmtilega leiki um helgina. Fimm úrslitaleikir eru á dagskrá á laugardeginum og fjórir á sunnudeginum. Dagskráin er eftirfarandi: Laugardagur: kl. 10.15 - 9. karla Haukar - Tindastóll kl. 12.00 - 10. kvenna Keflavík - Njarðvík kl. 14.00 - 11. drengja Njarðvík/Grindavík - KR kl. 16.00 - Unglinga kvenna Snæfell - Keflavík kl. 18.00 - Unglinga karla Hamar/ÞórÞ Þ. - Haukar Sunnudagur: kl. 10.15 - 9. kvenna Grindavík - Keflavík kl. 12.00 - 10. karla Höttur - Stjarnan kl. 14.00 - Stúlknaflokkur Haukar - Keflavík kl. 16.00 - Drengjaflokkur FSu - Njarðvík