22 feb. 2011Um næstu helgi, helgina 26.-27. febrúar, er komið Bikarúrslitum yngriflokka 2011 en leikið verður að Ásvöllum í Hafnarfirði. Leikið verður á laugardegi og sunnudegi og verður leikjaplanið sem hér segir: Laugardagur: ---------------- kl. 10.15 - 9. karla Haukar - Tindastóll kl. 12.00 - 10. kvenna Keflavík - Njarðvík kl. 14.00 - 11. drengja Njarðvík/Grindavík - KR kl. 16.00 - Unglinga kvenna Snæfell - Keflavík kl. 18.00 - Unglinga karla Hamar/ÞórÞ Þ. - Haukar Sunnudagur: ---------------- kl. 10.15 - 9. kvenna Grindavík - Keflavík kl. 12.00 - 10. karla Höttur - Stjarnan kl. 14.00 - Stúlknaflokkur Haukar - Keflavík kl. 16.00 - Drengjaflokkur FSu - Njarðvík Glæsileg umgjörð verður á úrslitahelginni, þar sem meðal annars, verður veitingasala, leikmannakynning verður fyrir alla leiki, leiksskrá verður gefin út fyrir hverng leik og allir leikirnir verða sýndir í beinni á netinu á Haukar-TV þar sem þulir lýsa. Aðgangur er ókeypis og eru allir hvattir til að mæta og styðja sín lið og sjá efnilegustu leikmenn landsins etja kappi á þessum skemmtilega viðburði sem úrslitahelgi bikarkeppninnar er.