21 feb. 2011
Kobe Bryant var valinn besti leikmaður Stjörnleiksins á heimavelli í gærkvöldi þegar Vestrið bar sigur úr býtum gegn Austrinu. Lokatölur voru [v+]http://www.nba.com/games/20110220/ESTWST/gameinfo.html#nbaGIboxscore[v-]148:143[slod-] Kobe skoraði 37 stig og tók 14 fráköst. Það var greinilegt þegar leikurinn hófst að hann var einbeittasti maðurinn í húsinu og með sín markmið á hreinu. Hann ætlaði að leiða sitt lið til sigurs á heimavelli og sýna það að hann er bestur í NBA deildinni.