17 feb. 2011
Í dag kl. 14 var fjölmiðlannafundur fyrir komandi úrslitaleiki í Poweradebikar karla og kvenna sem fara fram laugardaginn 19. febrúar. Á myndinni má sjá þjálfara liðanna með bikarana á milli sín. Frá vinstri: Helgi Jónas Guðfinnsson þjálfari Grindavíkur, Hrafn Kristjánsson þjálfari bæði kvenna og karlaliðs KR og Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari kvennaliðs Keflavíkur.