16 feb. 2011Barna- og unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur í samvinnu við Nettó og Reykjanesbæ standa fyrir sínu árlega körfuboltamóti í Reykjanesbæ helgina 5. og 6. mars 2011. Þetta er jafnframt 21. mót félaganna. Mótið er fyrir drengi og stúlkur í minnibolta fædd árið 1999 og síðar. Leikið verður á 13 völlum, 2 x 12 mínútur hver leikur. Innifalið í mótsgjaldi: • Bíóferð - Fyrir krakka 8 til 11 ára verður myndin Yogi Bear sem er ný gamanmynd. - Fyrir krakka 6 og 7 ára verður myndin Space Chimps 2 sem er ný teiknimynd og hæfir vel þeim aldurshópi. • Frítt verður í Vatnaveröld ‐ Sundmiðstöð • Hádegismatur á laugardag • Kvöldmatur á laugardag • Kvöldvaka og glaðningur • Kvöldhressing á laugardagskvöld • Gisting • Morgunmatur á sunnudag • Hádegismatur á sunnudag – Pizzuveisla frá Langbest • Verðlaunapeningur • Gjöf í mótslok • Reykjaneshöllin verður opin alla helgina en þar verður boðið uppá margskonar afþreyingu til dæmis hoppukastala, körfubolta, fótbolta, frisbee-gólf og margt fleira. Um er að ræða 7.840m² leiksvæði. • Innileikjagarðurinn Ásbrú verður opinn á laugardag frá kl. 14.30‐17.30 en það er leiksvæði sem hentar sérstaklega vel fyrir yngstu kynslóðina, 2‐8 ára. Mótsgjald: • Félagsgjald kr. 10.000.‐ • Gjald per. þátttakanda er kr. 5.000.‐ • Frítt er fyrir 1 þjálfara og 1 aðstoðarmann á hvert lið 28 síðna bæklingur mótsins verður sendur félögum fyrir mótið. Í honum eru allar upplýsingar um mótið. Einnig er hægt að nálgast bæklinginn á heimasíðu mótsins; www.nettomot.blog.is undirliðnum Tenglar, sem er vinstra megin á þeirri síðu. Skráning: Falur J. Harðarson Netfang: [p+]nettomot@gmail.com[p-] nettomot@gmail.com[slod-]. Sími: 896-4468 Athugið að síðasti skráningardagur er 25. febrúar, kl. 20:00.