14 feb. 2011
FIBA Europe tilkynnti á föstudag hvaða leikmenn urðu fyrir valinu sem "Bestu ungu leikmenn" ársins 2010. Jan Vesely frá Tékklandi varð hlutskarpastur að þessu sinni í kjöri almennings og valnefndar hjá körlum og Nika Baric frá Slóveníu í hjá konum. Í flokki karla var það Ricky Rubio, sem hefur hlotið heiðurinn í þrígang, sem varð annar að þessu sinni og Jonas Valanciunas, frá Litháen, varð þriðji. Leikmenn fæddir 1990 eða síðar voru hlutgengnir í valinu. Hinn fjölhæfi 2.10 cm hái framherji Jan Vesely, sem sumir vilja líkja við hinn magnaða Toni Kukoc, er leikmaður stórliðsins Partizan Belgrad og fór með liði sínu í undanúrslit í Euroleague þar sem hann var með að meðaltali 8.4 stig og 3.5 fráköst í leik. Hann lék einnig með landsliði Tékklands í A-deild Evrópukeppninar þar sem hann var með 11 stig og 5.5 fráköst að meðaltali en Tékkar verða á EM í Litháen í haust.
Besti ungi leikmaður kvenna er íslandsvinurinn Nika Baric, en hún kom með landsliði Slóveníu til Íslands, haustið 2008, þegar Slóvenía og Ísland léku saman í riðli í B-deild keppninnar það árið. Nika hlaut yfirburða kosningu í kjörinu að þessu sinni. Nika er 1.69 cm hár bakvörður sem var lykilmaður í U18-ára landsliði sínu sem sló í gegn á lokamótinu síðastliðið sumar þar sem Slóvenía komst í undanúrslit mótsins og hún var útnefnd MVP-leikmaður mótsins, þökk sé hraða og skothæfni hennar. Nika var með 23.3 stig og 5.9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hún leikur með ZKK Merkur Celje í heimalandinu og var aðeins 13 ára þegar hún lék fyrst fyrir U16-ára lið Slóveníu. Í þessari viku verður svo tilkynnt hverjir verða svo valin leikmenn ársins í karla- og kvennaflokki.