7 feb. 2011
Reykjavik Open, Streetball mót 3-á-3, fer fram í DHL höllinni við Kaplaskjólsveg, laugardaginn 26. febrúar, kl. 10-18 en það er körfuknattleiksdeild KR sem heldur mótið. Allir karlmenn, sem eru ekki atvinnumenn eða úrvalsdeildarleikmenn, og eru fæddir 1994 eða fyrr, mega taka þátt. 4 leikmenn skipa hvert lið. Almennum FIBA-reglum verður fylgt á mótinu. Leikið er á eina körfu, leiktími er 1x12 mín, skipt eftir skoraða körfu. Leikmenn geta fengið 3 villur, 3- og 2 stig fyrir körfur, 16 sek. skotklukka, dómari dæmir alla leiki. Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag, verðlaun og skráningu er að finna á [v+]http://web.me.com/aab1969/ReykjavikOpen2011/Streetball.html [v-]heimasíðu Reykjavík Open 2011[slod-].