7 feb. 2011Árlegt Póstmót Breiðabliks var haldið helgina 29.-30. janúar í íþróttahúsunum Smáranum og Kórnum í Kópavogi. Tæplega 750 krakkar frá 18 félagsliðum kepptu á mótinu sem haldið var fyrir krakka á aldrinum 6-11 ára. Á Póstmótinu eru stigin ekki talin og því enginn sigurvegari eftir hvern leik. Leikgleðin var því í fyrirrúmi og skemmtu krakkar og foreldrar sér vel alla helgina. Myndir frá mótinu má finna hér.[v+]https://picasaweb.google.com/postmot [v-]hérna[slod-].