5 feb. 2011Í dag eru tveir stórleikir á dagskrá í Poweradebikarnum en um er að ræða undanúrslitaleiki karla og kvenna. Báðir leikir dagsins eru sýndir í beinni útsendingu á RÚV. KR - Hamar í undanúrslitum kvenna kl. 14.00 KR - Tindastóll í undandúrslitum karla kl. 16.00 Leikirnir eru einnig í beinni tölfræðilýsingu á kki.is Í gær komst Keflavík í úrslitaleikinn í Poweradebikar kvenna og á sunnudaginn kemur í ljós hvort það verða Haukar eða Grindavík sem komast í úrslitaleik karla. Sá leikur hefst kl. 19.15 annað kvöld og fer fram á Ásvöllum.