30 jan. 2011Nú fyrr í kvöld var dregið í riðla fyrir Evrópumótið í Litháen í haust. Óhætt er að segja að gestgjafar Litháa hafi lent í sterkasta riðlinum en auk þeirra eru þar ríkjandi meistarar Spánverja, silfurhafarnir frá síðasta heimsmeistaramóti Tyrkir eru í sama riðli auk Póllands, Bretlands og liðs úr umspili. Þrjú lið munu leika í umspili sem mun fara fram í ágúst þar sem Finnar, Ungverjar og Portúgalir keppa um tvö laus sæti á EM. Ólafur Rafnsson, forseti FIBA Europe, sagði það vel við hæfi að hefja nýtt keppnisfyrirkomulag lokakeppninnar í Litháen þar sem körfubolti er vinsælasta íþrótt landsins og markmið stækkun lokakeppninnar er einmitt að gera flaggskip körfuboltans í Evrópu sem glæsilegast. Nú í fyrsta sinn taka 24 þjóðir þátt í lokamótinu í stað 16 áður. Mótið hefst í byrjun september. Fyrsta umferð verður leikin í Alytus, Šiauliai, Panevėžys og Klaipėda. Önnur umferð fer fram í Vilnius og úrslitin svo í Kaunas. Riðlar í fyrstu umferð EM 2011: A-riðill: Spánn Tyrkland Litháen Bretland Pólland og lið úr öðru sæti í umspili B-riðill: Serbía Frakkland Þýskaland Ísrael Ítalía Lettland C-riðill: Grikkland Króatía Svartfjallaland Makedónía Bosnía og lið úr fyrsta sæti í umspili D-riðill: Slóvenía Rússland Belgía Georgía Búlgaría Úkraína Vefur keppninnar: [v+]http://www.eurobasket2011.org/en/default.asp [v-]www.eurobasket2011.org[slod-]