29 jan. 2011Í dag fagnar körfuknattleikshreyfingin því að 50 ár eru liðin frá stofnun Körfuknattleikssambandsins. Þrátt fyrir að sambandið hafi verið stofnað 29. janúar 1961 voru fyrstu Íslandsmeistarar í karlaflokki krýndir árið 1952 og fyrsti landsleikurinn hjá karlaliðinu var leikinn sjö árum seinna eða þann 16.maí 1959. Þannig að körfuboltinn á sér lengri sögu hér landi en aldur sambandsins segir til um. Körfuboltinn hefur vaxið jafnt og þétt á þessum fimm tugum ára og hefur verið unnið gott starf hringinn í kringum landið til að breiða út áhuga á körfuboltanum og þátttöku leikmanna. Nú er svo komið að körfboltinn er önnur útbreiddasta íþróttagrein landsins samkvæmt tölum frá ÍSÍ en körfuboltinn er stundaður í 24 af 25 íþróttahéruðum Íslands. Það voru miklir eldhugar sem stofnuðu KKÍ fyrir 50 árum og enn 50 árum seinna eru eldhugar um land allt sem vinna óeigingjarnt starf í sjálfboðavinnu til að halda út öflugu körfuboltastarfi. Sú góða staða körfuboltans á Íslandi í dag er þessum sjálfboðaliðum og eldhugum að þakka. Sjá allan pistilinn hér í [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?adgerd=ein&id=386[v-]lesningunni[slod-].