24 jan. 2011Hið árlega öldungamót Þórs fyrir 30 ára og eldri verður haldið laugardaginn 26. febrúar í íþróttahöllinni á Akureyri. Einstaklingum gefst kostur á að skrá sig og verður sett saman lið fyrir þá sem skrá sig þannig. Þátttökugjald er kr. 2500 – pr. þátttakanda. Boðið verður upp á pizzu og einhvern glaðning í mótslok. Fyrirspurnir varðandi mótið er best að senda í tölvupósti til eiisig[at]internet.is eða hafa samband í síma 892-3166 og munum við svara öllu sem að mótinu viðkemur. Skráning er í sama netfangi en síðasti dagur skráningar er þriðjudagurinn 22. febrúar.