24 jan. 2011Körfuboltadagur KKÍ verður í Smáralindinni Laugardaginn 29. janúar í tilefni 50 ára afmælis KKÍ. Dagskrá hátíðarinnar: 14.00 Opnun hátíðarinnar í Smáralind Afmæliskaka í boði fyrir alla gesti Jóel Sæmundsson körfuboltamaður og leikari tekur við stjórninni og stýrir dagskrá og viðburðum. 14.10 Körfuboltastöðvar, leikmenn Iceland Express deilda sprella með gestum og gangandi. - víti, drippl, skot, stinger, sendingar og fleira fyrir krakka til að prufa 14.30 Leikmenn úr Iceland Express deildum karla og kvenna sýna listir - 3ja-stiga keppni milli sigurvegara Stjörnuleiks karla og kvenna - Keppt í einfaldri þrautabraut á tíma 15.00 Formleg setning afmælisársins Hannes Sigurbjörn Jónsson formaður heldur stutta tölu og kynnir árið, happdrættið og fleiri viðburði á árinu og setur afmælishátíðina og afmælisárið. 15.15 Latibær kemur í heimsókn 15.45 Körfuboltastöðvar halda áfram - víti, drippl, skot, stinger, sendingar og fleira fyrir krakka til að prufa 17.00 Formlegri dagskrá lýkur Að auki verða plaköt gefin, Playstation kassar með NBA Jam leiknum verður á staðnum fyrir gesti að prófa svo eitthvað sé nefnt.