14 jan. 2011Á morgun fer fram Stjörnuleikshátíð kvenna í Ásgarði. Í tilefni af því hafa öll yngri stúlknalandslið KKÍ, U15, U16 og U18, verið boðuð á fund og fyrirlestur í félagsheimili Stjörnunnar. Margir áhugaverðir fyrirlestrar verða í boði varðandi afreksstarf og því sannarlega sérstakur dagur á morgun sem er tileinkaður kvennakörfuboltanum. Dagskrá: 11:30 Opnun fundarins. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ og Þóra Melsted formaður unglinganefndar KKÍ. 11:45 Anna María Sveinsdóttir afrekskona í körfubolta (besti leikmaður 20. aldarinnar, sex sinnum valin besti leikmaður úrvaldsdeildar kvenna, 60 A-landsleikir) fjallar um kvennakörfuboltann frá hennar sjónarhorni. 12:15 Erlendir leikmenn koma og segja frá sinni reynslu sem atvinnumenn: Jacquline Adamshick, Keflavík, Jaleese Butler, Hamar og Natasha Harris, Fjölni. 13:00 Hafrún Kristjánsdóttir íþróttasálfræðingur með fyrirlestur. 13:45 Fundarslit 14:30 Stjörnuleikshátíð hefst