13 jan. 2011
Eitt og annað verður á dagskrá í kringum Stjörnuleik kvenna á laugardaginn. Þriggja-stiga keppnin verður á sínum stað en einnig verður á dagskrá nýr skotleikur sem hefur fengið nafnið Para-skotkeppnin. Nokkur þekkt pör úr körfuboltanum munu etja kappi í skemmtilegum skotleik. Keppendur að þessu sinni eru: Margrét Sturlaugsdóttir og Falur Harðarson Pálína Gunnlaugsdóttir og Kjartan Atli Kjartansson Hafdís Hafberg og Marel Guðlaugsson Berglind Anna Magnúsdóttir og Jóhann Ólafsson Argentína Steikhús býður sigurvegurunum þriggja rétta kvöldverð. Hvert lið þarf að skjóta á 6 stöðum á einni körfu og klára þrautina með því að báðir þátttakendur drippla yfir völlinn og leggja boltann í körfuna hinum megin á vellinum í lokin. Tvö lið fara í úrslit eftir fyrstu umferð. Það lið sem klárar á sem skemmstum tíma sigrar.