12 jan. 2011
Í dag verður dregið í 4-liða úrslit Poweradebikars karla og kvenna en um síðastliðna helgi kláruðust 8-liða úrslitin og því ljóst hvaða lið fara í undanúrslitin í Poweradebikarnum í ár.
Dregið verður í aðalstöðvum Vífilfells, framleiðanda Powerade, að Stuðlahálsi 1 kl.13.00.
Liðin sem verða í skálinni góðu eru:
Undanúrslit kvenna:
Hamar - Keflavík - KR - Njarðvík
Undanúrslit karla:
Grindavík - Haukar - KR - Tindastóll
Einn leikur verður sýndur beint á RÚV úr undanúrslitunum.
Leikið verður helgina
5.-6. febrúar en úrslitaleikirnir fara fram í Laugardalshöllinni 19. febrúar og verða í beinni útsendingu á RÚV.