7 jan. 2011Nú er netkosningunni á kki.is lokið en hátt í 1.000 manns kusu í liðin tvö sem mætast 15. janúar næstkomandi í Ásgarði í Garðabæ. Það var Bryndís Guðmundsdóttir, Keflavík sem hlaut flest atkvæði að þessu sinni eða 157. Næstar í 2.-3. sæti voru þær Margrét Kara Sturludóttir og Birna Valgarðsdóttir með 140 atkvæði hvor. Byrjunarliðin verða þannig skipuð: Reykjanesið: Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík Íris Sverrisdóttir - Haukum Bryndís Guðmundsdóttir - Keflavík Birna Valgarðsdóttir - Keflavík Jacquline Adamshick - Keflavík Þjálfari liðsins, Jón Halldór Eðvaldsson, mun svo velja sjö leikmenn úr liðum Keflavíkur, Njarðvíkur, Grindavíkur og Hauka. Landið: Hildur Sigurðardóttir - KR Slavica Dimovska - Hamar Margrét Kara Sturludóttir - KR Jaleese Butler - Hamar Signý Hermannsdóttir - KR Ágúst Sigurður Björgvinsson þjálfar lið Landsins og mun velja næstu 7 leikmenn liðsins úr liðum KR, Fjölnis, Snæfells og Hamars.