5 jan. 2011Aga- og úrskurðarnefnd kom saman í gær og tók fyrir eitt mál. Nefndin tók fyrir kæru á hendur Magnúsi Gunnarssyni, leikmanni mfl. Njarðvíkur, en hann fékk tvær tæknivillur gegn Tindastól í 11. umferð Iceland Express-deildar karla og þurfti því að yfirgefa völlinn. Nefndin áminnir hann. Úrskurður nefndarinnar: "Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar nr. 10/2010-2011. Hinn kærði, Magnús Þór Gunnarsson - Njarðvík, skal sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Tindastóls - Njarðvíkur sem fram fór þann 17. desember 2010." Sjá alla úrskurði nefndarinnar [v+]http://www.kki.is/aganefndarmal.asp[v-]hér[slod-].