4 jan. 2011
Veitt voru verðlaun í hádeginu fyrir framúrskarandi frammistöðu í Iceland Express-deildum karla og kvenna eftir fyrri hluta keppnistímabilsins. Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express og Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ afhentu verðlaunin. Eftirtaldir leikmenn og þjálfarar hlutu verðlaun. Úrvalslið Iceland Express-deildar kvenna 1. Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík 2. Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir - KR 3. Margrét Kara Sturludóttir - KR 4. Bryndís Guðmundsdóttir - Keflavík 5. Jaleese Butler - Hamar Besti þjálfarinn: Ágúst S. Björgvinsson - Hamar Dugnaðarforkur/Besti varnarmaður: Jacquline Adamshick - Keflavík Besti leikmaður í umferðum 1-11: Jaleese Butler - Hamar Úrvalslið Iceland Express-deildar karla 1. Pavel Ermolinskij - KR 2. Ægir Þór Steinarsson - Fjölnir 3. Hörður Axel Vilhjálmsson - Keflavík 4. Jón Ólafur Jónsson - Snæfell 5. Lazar Trifunovic - Keflavík Besti þjálfarinn: Ingi Þór Steinþórsson - Snæfell Dugnaðarforkur/Besti varnarmaður: Ryan Pettinella - Grindavík Besti leikmaður í umferðum 1-11: Pavel Ermolinskij - KR
Besti dómarinn er valinn af öllum þjálfurum í Iceland Express deildum karla og kvenna en þeir voru beðnir að velja sex dómara og raða þeim í sæti. Besti dómarinn í Iceland Express-deildunum var kjörinn Sigmundur Már Herbertsson.