27 des. 2010Körfuknattleiksdeildir íþróttafélaganna í Reykjavík í samstarfi við Körfuknattleiksráð Reykjavíkur hafa ákveðið að halda Reykjavíkurmót í körfubolta dagana 27.-30. desember. Ráðist hefur verið í þetta til að brjóta æfingatörn liðanna yfir jólin upp á skemmtilegan hátt og auka leikjafjölda tímabilsins um leið auk þess sem þetta gamalgróna mót var ekki haldið í haust. Leikið er í tveimur þriggja liða riðlum dagana 27.-29. desember og barist um sæti fimmtudaginn 30. desember. Meðfylgjandi er riðlaskipting og leikjaniðurröðun mótsins. Eru körfuboltaáhangendur hvattir til að láta sjá sig og hvetja sitt lið til sigurs! A-Riðill KR ÍR Ármann B-Riðill Valur Fjölnir Leiknir Leikjaniðurröðun: Mánudagur 27. desember 18:15 DHL-höllin - KR – Ármann 20:00 DHL-höllin - Fjölnir – Leiknir Þriðjudagur 28. desember 17:30 Seljaskóli - Leiknir – Valur 18:30 Laugardalshöll - Ármann – ÍR Miðvikudagur 29. desember 18:15 Vodafone - Valur – Fjölnir 20:00 Vodafone - ÍR – KR Fimmtudagur 30. desember Tilkynnt síðar - 5.-6. sæti 17:15 Dalhús - 3.-4. sæti 19:00 Dalhús - Úrslitaleikur