22 des. 2010Helena Sverrisdóttir og Jón Arnór Stefánsson hafa verið valin körfuknattleikskona og körfuknattleiksmaður ársins 2010 af KKÍ.
Helena Sverrisdóttir: TCU College Bakvörður 22 ára 180 cm Helena Sverrisdóttir er á sínu fjórða og síðasta ári með TCU háskólanum sem er með eitt besta körfuboltalið landsins. Helana hefur látið mikið að sér kveða þessi þrjú ár sem hún hefur verið með liðinu og þess vegna eru gerðar miklar kröfur til hennar fyrir núverandi tímabil. Tölfræði Helenu á tímabilinu sem af er: 17.7 stig á leik 6.6 fráköst á leik 3.8 stoðs. á leik Var valin besti leikmaður Mountain West riðilsins tímabilið 2009-2010 Var valin í úrvalslið riðilsins fyrir námsárangur 2010 Var valin besti leikmaður vikunnar í riðlinum í tvígang 2010 Var tilnefnd sem ein af 50 leikmönnum í háskólaboltanum til Naismith verðlauna sem leikmaður ársins 2010-2011 Var tilnefnd sem ein af 25 leikmönnum í háskólaboltanum til Wooden verðlauna sem leikmaður ársins 2010-2011 Var tilnefnd sem ein af 5 bestu leikmönnum landsins í sinni leikstöðu fyrir tímabilið 2010-2011
Jón Arnór Stefánsson: Granada Bakvörður 28 ára 196 cm Jón Arnór Stefánsson hefur átt frábært ár ( 2010 ) með Granada sem leikur í ACB deildinni á Spáni sem er sterkasta deild í heimi fyrir utan NBA deildina. Granada rétt missti af tækifærinu á að komast í úrslitakeppnina á Spáni sl. vor. Tölfræði Jóns á tímabilinu þar sem af er: 10 stig á leik 1.7 fráköst á leik 1.7 stoðs. á leik Jón Arnór og Helena hafa sýnt á síðustu árum að þau eru í fremstu röð íslenskra íþróttamanna og árangur þeirra í hinum stóra heimi körfuboltans undirstrikar það. Körfuboltafólk ársins frá árinu 1998: 1998: Helgi Jónas Guðfinnsson og Anna María Sveinsdóttir 1999: Herbert Arnarson og Guðbjörg Norðfjörð 2000: Ólafur Jón Ormsson og Erla Þorsteinsdóttir 2001: Logi Gunnarsson og Kristín Björk Jónsdóttir 2002: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir 2003: Jón Arnór Stefánsson og Signý Hermannsdóttir 2004: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir 2005: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir 2006: Brenton Birmingham og Helena Sverrisdóttir 2007: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir 2008: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir 2009: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir 2010: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir Oftast valin Körfuboltamaður ársins:* 8 Jón Arnór Stefánsson (2002, 2003, 2004, 2005, 2007, 2008, 2009, 2010) 6 Helena Sverrisdóttir ( 2005, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010) 4 Jón Kr. Gíslason (1987, 1989, 1992, 1993) 3 Kristinn Jörundsson (1973, 1975, 1977) 2 Jón Sigurðsson (1976, 1978) 2 Valur Ingimundarson (1984, 1988) 2 Guðmundur Bragason (1991, 1996) 2 Anna María Sveinsdóttir (1994, 1998) 2 Birna Valgarðsdóttir (2002, 2004) * Valið hefur verið tvískipt síðan 1998 en frá 1973 til og með 1997 var aðeins valin einn aðili, karl eða kona, en síðan þá hafa verið valin Körfuknattleiksmaður og Körfuknattleikskona ársins.