17 des. 2010Búið er að fresta tveimur leikjum sem áttu að fara fram í dag á Íslandsmótinu. Leik Þórs Akureyrar og Hattar í 1. deild karla hefur verið frestað en ekkert ferðaveður er á norðausturlandi. Nýr leikdagur er 9. janúar kl. 14.00. Leik KFÍ og Laugdæla í 1. deild kvenna hefur verið frestað en ekkert er flogið seinni partinn til Ísafjarðar. Nýr leiktími verður kynntur bráðum.