15 des. 2010Körfuknattleiksdeild Hauka stendur fyrir skemmtilegu körfuboltamóti í samvinnu við Actavis fyrir stúlkur og drengi fædda 1999 - 2004. Í þetta skiptið verður mótið haldið 8. - 9. janúar. Leikið verður 4 á 4 í 2 x 12 mínútur, leiktími ekki stöðvaður og stig ekki talin enda allir sigurvegarar. Þátttökugjaldið er aðeins 2.000 krónur á leikmann, frítt fyrir Haukakrakka og fá allir verðlaunapening. Þátttaka tilkynnist í tölvupósti á netfangið [p+]actavismotid@haukar.is[p-] actavismotid@haukar.is[slod-] en skráningu lýkur í dag 15. desember.