14 des. 2010Í dag tók aga- og úrskurðarnefnd fyrir eitt mál sem var á dagskrá hjá nefndinni. Helgi Rafn Viggósson fær áminningu en honum var vikið af velli í leik Keflavíkur og Tindastóls í Iceland Express-deild karla þann 10. desember. Úrskurður nefndarinnar: Hinn kærði, Helgi Viggósson, Tindastóli, skal sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Keflavíkur - Tindastóls sem fram fór þann 9. desember 2010. Niðurstaða aga- og úrskurðarnefndar er að teknu tilliti til skýrslu dómara með kæru í málinu." Sjá úrskurði nefndarinnar [v+]http://www.kki.is/aganefndarmal.asp[v-]hér[slod-].