11 des. 2010Troðslukóngurinn Ólafur Ólafsson, úr Grindavík, kom sá og sigraði í PEAK-troðslukeppninni í dag en hann lagði Guðmund Darra Sigurðsson úr Haukum í úrslitum. Í forkeppninni voru sjö þátttakendur og voru þeir Ólafur og Guðmundur Darri stigahæstir eftir fyrstu umferðina. Í úrslitunum sem voru í hálfleik á Stjörnuleiknum sýndu þessir kappar flotta takta en svo fór að dómnefnd taldi Ólaf standa sig betur. Ólafur var einnig troðslumeistari árið 2008 í Keflavík. Til hamingju Ólafur.