11 des. 2010Það var mikil eftirvænting í loftinu fyrir leik eldri landsliðsmanna og celeb-liðsins svokallaða. Í fyrra mættust þessi lið þar sem landsliðsmennirnir fóru með auðveldan sigur af hólmi. Í ár var annað upp á teningnum og þurftu landsliðsmennirnir að hafa mikið fyrir hlutunum. Celeb-liðið var búið að fá nýja liðsmenn en þeir Guðmundur Benediktsson, Hjörvar Hafliðason og Jogvan Hansen voru nú komnir í búning til að hjálpa félögum sínum og einnig fékk Celeb-liðið Egil Jónasson leikmann Njarðvíkur lánaðan til að hækka meðalhæðina aðeins. Steindi JR. forfallaðist á síðustu stundu en lofaði að hann myndi vera með næst. Í byrjun voru Celeb-liðar beittir og skoruðu nokkrar körfur. Ljóst var að þeir ætluðu ekki að láta valta yfir sig aftur og reyndu eins og þeir gátu að halda í við landsliðsmennina. Að lokum fór þó þannig að landsliðsmennirnir höfðu sigur 34-26 í leik sem var mun jafnari heldur en sá í fyrra. Stigahæstur hjá landsliðsmönnunum var Jón Kr. Gíslason með 12 stig en þau komu öll úr þriggja-stiga skotum. Hjá Celeb-liðinu var Auðunn Blöndal með 7 stig.
Liðsmenn beggja liða í leikslok.