7 des. 2010Aga- og úrskurðarnefnd kom saman í dag en tvo mál voru á dagskrá nefndarinnar. Ágúst Björgvinsson fær einn leik í bann en honum var vísað úr húsi gegn ÍR í Iceland Express-deildinni mánudaginn 29. nóvember. Dómur nefndarinnar: Hinn kærði, Ágúst Björgvinsson - Hamri, skal sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik ÍR - Hamar sem fram fór þann 29. nóvember 2010. Ásgeir Ásgeirsson fær áminningu en honum var vikið úr húsi gegn ÍA í 2. deild karla föstudagin 3. desember. Dómur nefndarinnar Hinn kærði, Ásgeir Ásgeirsson - ÍG, skal sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik ÍA - ÍG sem fram fór þann 3. desember 2010." Sjá úrskurði nefndarinnar [v+]http://www.kki.is/aganefndarmal.asp[v-]hér[slod-].