2 des. 2010Á Stjörnuleikshátíðinni verður boðið upp á þriggja stiga-keppni að venju og hafa tíu leikmenn verið boðaðir til leiks. Það eru átta þeirra sem bestu nýtinguna hafa eftir 9. umferðir í deildinni auk Magnúsar Þórs Gunnarssonar sigurvegara 3-stiga keppni Stjörnuleiks KKÍ 2009 og Marek Avlas sigurvegara í 3-stiga keppni Sumardeildar KKÍ. Leikmennirnir sem taka þátt eru: Sean Burton · Snæfell Ægir Þór Steinarsson · Fjölnir Kjartan Atli Kjartansson · Stjarnan Justin Shouse · Stjarnan Pálmi Freyr Sigurgeirsson · Snæfell Ellert Arnarson · Hamar Ryan Amaroso · Snæfell Brynjar Þór Björnsson · KR Marek Avlas · Stál-Úlfur Magnús Þór Gunnarsson · Njarðvík Skotið er á 5 stöðum fyrir utan línuna og eru þrír boltar á hverjum stað, en síðasti boltinn gildir 2 stig. Mest er því hægt að ná 20 stigum en í fyrra sigraði Magnús með 15 stig og Sean Burton var í öðru sæti með 14 stig.