30 nóv. 2010
PEAK troðslukeppnin 2010 Stjörnuleikshátíð KKÍ fer fram 11. desember næstkomandi í Seljaskóla. Troðslukeppnin verður á sínum stað og þetta árið er hún í boði Súperskór sf. sem er með umboð fyrir Peak körfuboltaskó á Íslandi, sjá nánar á [v+]http://www.superskor.is [v-]www.superskor.is[slod-]. Vegleg verðlaun í boði fyrir þann sem fer með sigur af hólmi: - 25.000 kr. vöruúttekt hjá Peak - Styrktarsamningur við Peak fyrir tímabilið 2011-2012 - DVD diskur með öllum troðslum sigurvegarans í keppninni frá Leikbrot.is Skráning fer fram hjá Körfuknattleikssambandi Íslands í gegnum tölvupóst á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-].