26 nóv. 2010Í kvöld fara fram þrír leikir í 1. deild karla. Á Akureyri taka heimamenn í Þór á móti nýliðum Leiknis frá Reykjavík. Leikurin fer fram í Höllinni og hefst kl. 19.15. Þór er 2.-3. sæti deildarinnar með fimm sigra og einn tapleik. Leiknir er í 9. sæti með einn sigur og fimm töp eftir fyrstu sex umferðirnar. Skallagrímur og Ármann mætast í Fjósinu í Borgarnesi á sama tíma kl. 19.15. Skallagrímur er í 4.-6. sæti með þrjá sigra og þrjú töp en Ármann er í 7. sæti með tvo sigra og fjögur töp. Að Hlíðarenda mætast svo Valur og FSu kl. 20.00. FSu deila 2.-3. sætinu með Þór Akureyri en Valsmenn eru í 4.-6. sæti með þrjá unna og þrjá tapaða. Allir leikirnir verða í beinni tölfræðilýsingu hér á kki.is Á sunnudaginn mætast svo Breiðablik og Þór Þorlákshöfn í Smáranum kl. 18.00. Þórsarar eru á toppnum með sex sigra í fyrstu sex leikjunum og Blikar eru í 4.-6. sæti með þrjá sigra.