24 nóv. 2010Að venju verður efnt til Troðslukeppni á Stjörnuleikshátíðinni þann 11. desember í Seljaskóla og óskar KKÍ eftir þátttakendum til að taka þátt. Áhugasamir geta sent póst á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-] Þriggjamanna dómnefnd valinkunnra einstaklinga mun dæma keppnina en dómefndin í fyrra var skipuð þeim félögum Sigurði Ingimundarsyni, Jóni Kr. Gíslasyni og Teiti Örlygssyni. Nánari viðburðir verða svo kynntir til leiks á næstu dögum.