23 nóv. 2010Hin klassíska þriggjastiga-skotkeppni verður á sínum stað á Stjörnuleiknum en á næstunni verður tilkynnt hverjir verða hvaddir til leiks til að taka þátt í henni. Leikmenn fá 15 bolta á 5 stöðum fyrir utan línuna, eða þrjá á hverjum stað. Eitt stig er gefið fyrir skoraða körfu en fyrir síðasta boltann á hverri stöð fá leikmenn tvö stig. Efstu tveir þátttakendurnir fara í úrslit og sá sem fær fleiri stig þar hlýtur sigur. Það var Magnús Þór Gunnarsson, Njarðvík, sem sigraði fyrir ári í Grafarvoginum. Fleiri viðburðir á hátíðinni verða tilkynntir á næstunni en þar verður á meðal skemmtileg nýjung sem verður kynnt til leiks í fyrsta sinn Stjörnuleik KKÍ.