23 nóv. 2010Í gær lauk 8. umferð Iceland Express-deildar karla og var þá ljóst hvaða tveir þjálfarar munu stýra liðunum tveim í Stjörnuleik karla þann 11. desember næskomandi. Líkt og svo oft áður voru það efstu þjálfararnir á þessum tímapunkti sem voru skipaðir þjálfarar liðanna tveggja. Í ár var ákveðið að skipta liðunum 12 í deildinni í lið af höfuðborgarsvæðinu og af landsbyggðinni. Ingi Þór Steinþórsson og lið hans Snæfell er í efsta sæti deildarinnar og verður hann því þjálfari Landsbyggðarliðsins. KR-ingar eru efstir liða af Stór-Reykjavíkursvæðinu og mun Hrafn Kristjánsson því vera þjálfari liðs Höfuðborgarsvæðisins í leiknum. Ingi Þór hefur þrisvar sinnum áður stýrt liði á Stjörnuleik karla, fyrst árið 2000 á Strandgötu, næst 2002 að Ásvöllum og svo síðast 2008 ásamt Benedikt Guðmundssyni einnig að Ásvöllum. Hrafn þreytir frumraun sína sem þjálfari Stjörnuliðs í ár.