23 nóv. 2010Þeir félagar Sigmundur og Björgvin, FIBA dómarar, eru á ferð og flugi næstu daga í verkefnum fyrir FIBA Europe. Annað kvöld fer fram leikur TTT Riga frá Lettlandi gegn USO Mondeville frá Frakklandi Meistaradeild kvenna. Sigmundur Már Herbertsson hélt utan í morgun til Lettlands og mun dæma þann leik sem aðaldómari í slagtogi við tvo aðra meðdómara. Björgvin Rúnarsson heldur utan á morgun og dæmir á fimmtudag leik Lemminkainen frá Litháen gegn Zeljeznicar frá Bosníu en leikurinn er í keppni Evrópubikars kvenna og fer fram í Litháen.