15 nóv. 2010Stjörnuleikur karla fer fram í Seljaskóla laugardaginn 11. desember. Á næstu dögum birtum við fleiri fréttir af Stjörnuleikshátíðinni eins og hvernig verður valið í liðin og hvaða uppákomur verða í tengslum við hátíðina og svo framvegis. Stjörnuleikur kvenna: Stjörnuleikur kvenna mun fara fram á sérstökum körfuboltadegi kvenna sem verður laugardaginn 15. janúar. Nánar verður sagt frá þeim leik og þeim viðburðum sem verða í kringum leikinn síðar.