13 nóv. 2010Í dag þurfti að fresta fjölliðamóti á Ísafirði. C-riðill í Stúlknaflokki átti að fara fram þar um helgina en ÍA og Tindastóll komust ekki leiðar sinna en bæði lið áætluðu að keyra í morgun. Ekki var unnt að leggja í hann enda skilyrði til aksturs á vestfjörðum ekki þau bestu í morgun. En vegir eru ekki ruddir á laugardögum á vestfjörðum og því var ljóst að miðað við þá ofankomu sem féll í nótt og í morgun að mótinu þurfti að fresta. Mótið verður sett á næstu helgi. Einnig komst lið Þórs frá Akureyri ekki til Njarðvíkur en þeir áttu leik upp úr hádegi í A-riðli í 11. flokki. Mikið hefur snjóað á Akureyri undanfarið og í nótt var mikil snjókoma eins og má lesa á [v+]http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/11/13/allt_a_kafi_i_snjo_a_akureyri/[v-]Mbl.is[slod-] og íbúar áttu erfitt með að ferðast innanbæjar. Fresta þurfti einum leik í B-riðli í 8. flokki drengja en lið Tindastóls gat ekki lagt af stað eins snemma í morgun og þurfti til vegna veðurs. Var því einum leik hjá Sauðkrækingum frestað til morguns en þeir eru núna á leiðinni í bæinn en B-riðill er í Seljaskóla.