2 nóv. 2010Aga- og úrskurðarnefnd var með tvö mál á dagskránni í dag á fundi sínum. Þeir Ólafur Torfason og Hraunar Guðmundsson eru báðir áminntir fyrir háttsemi sína. Ólafur Torfason fær áminningu eftir leik FSu og Þórs í 1. deild karla en á hann voru dæmar tvær óíþróttamannslegar villur. Hraunar Guðmundsson fær áminningu eftir leik Breiðabliks og Njarðvíkur í unglingaflokki karla. En hann fékk tvær tæknivillur í leiknum. Hægt er að sjá úrskurði aga- og úrskurðarnefndar [v+]http://www.kki.is/aganefndarmal.asp[v-]hér[slod-].