2 nóv. 2010Haukur Helgi og félagar í Maryland léku í gær sinn fyrsta leik á tímabilinu en það var æfingaleikur gegn Florida Southern skólanum. Maryland átti ekki í miklum vandræðum með gestina og sigraði 106:58. Haukur lék í um 12 mínútur og var með 8 stig, 5 fráköst og eitt varið skot. Næstu leikir verða 8.-14. nóvember í 2K Sports Classic mótinu en gangi þeim vel þar fara þeir í úrslit í Madison Square Garden. Keppni í ACC-deildinni hefst svo 1. desember. Svipmyndir frá leikmönnum Maryland í leiknum má sjá [v+]http://www.umterps.com/allaccess/?media=205960[v-]hérna[slod-] en þar setur Haukur niður einn af tveim þristum sínum í leiknum. Haukur var með 2/2 fyrir utan þriggja og 1/2 inni í teig.