1 nóv. 2010Alþjóða Körfuknattleikssambandið – FIBA World ákvað fyrir nokkru að breyta merkingum á körfuknattleiksvöllum sem er meðal annars liður í því að leikurinn verði alls staðar eins. Einnig munu verða breytingar á reglum um skotklukku. Keppt verður eftir þessum nýju merkingum og breytingu á skotklukku í ýmsum löndum Evrópu í vetur en FIBA Europe setti það sem skilyrði fyrir þau lið sem taka þátt í Evrópukeppnum félagsliða að leikið yrði við þessar nýju aðstæður frá hausti 2010. KKÍ ákvað eins og ýmsar aðrar þjóðir að taka þessar nýju reglur í gildi frá og með keppnistímabilinu 2011-2012. Með því gefst sveitarfélögum og félögum meiri tími í að gera viðeigandi ráðstafanir. Þessar breytingar hafa verið tilkynntar viðeigandi aðilum eins og félögunum, sveitarfélögunum og rekstraraðilum íþróttahúsa. Nú þegar hafa mörg hús sem voru með á dagskránni að laga eða endurnýja gólf, sett upp nýju línurnar og meðal þeirra eru KFÍ og ÍR, en hægt er að sjá frétt um nýtt parket á Seljaskóla [v+]http://www.karfan.is/frettir/2010/10/06/parket_i_hellinum:_fallegur_er_korfuboltavollurinn[v-]hérna[slod-] Núverandi leiklínur hafa því verið settar með til bráðabirgða út þetta tímabil. Í stuttu máli færist þriggja stiga línan utar og teigurinn verður kassalaga með ruðningsfríu svæði undir körfunni. Breytingar á merkingum og skotklukku innihalda eftirfarandi: • Þriggja stiga línan færist frá 6.25m í 6.75m • Breytt lögun á svæðinu (takmarkaða svæðinu) innan vítateigs. Það verður ferhyrnt í stað trapisulaga. • Ruðningsfrír hálfhringur sem kemur undir körfuna innan takmarkaða svæðisins. • Innkastslína við hliðarlínu þar sem innköst verða tekin þegar lið kemur út úr leikhléi og minna en 2 mínútur eru eftir af leiknum. Í framlengingu eru innköst einnig tekin frá þessarri nýju línu eftir leikhlé. Staðsetning þessarar línu er í beinni línu út frá efsta boga þriggjastigalínunnar. • Með breyttri reglu á skotklukku þarf að vera hægt að endursetja í 14 sek. og einnig í 24 sek. eins og er í dag. Ef 13 sekúndur eða minna eru eftir á skotklukkunni þegar leikur er stöðvaður við villu, fót eða aðrar aðstæður þar sem klukkan hefði verið endurstillt í 24 sek. og lið er á sóknarhelmingi skal endursetja skotklukkuna á 14 sekúndur. Þessar breytingar verða svo kynntar nánar þegar nær dregur.