26 okt. 2010Sigmundur Már Herbertsson er á leið til Litháen þar sem hann dæmir leik VICI Aistes frá Litháen og Sparta&K Moscow Region í Meistaradeild kvenna sem fram fer í Kaunas miðvikudaginn 27. október. Sigmundur er aðaldómari leiksins og meðdómarar hans eru Pekka Saros frá Finnlandi og Athanasios Ikonomou frá Svíþjóð. Eftirlitsmaður er Anthony Colgan frá Austurríki. Þessi lið eru í C-riðli og er þetta fyrsti leikur liðanna í keppninni. Hægt er að fylgjast með leiknum [v+]http://www.fibaeurope.com/cid_KNce8jInH7Qj1EsyH5rjn2.compID_jr6ZiXqeGhMBtfq1yxqV83.html[v-]hér[slod-]