25 okt. 2010Árlegir fundir allra deilda í bandaríska háskólaboltanum fóru fram í síðustu viku og þar var Maryland liði Hauks Helga Pálssonar spáð fimmta sæti ACC deildarinnar sem er jafnan besta deild háskólaboltans. Duke er spáð sigri í deildinni en skólinn fékk 743 stig á meðan Maryland fékk 432. Fyrir ári var Maryland einnig spáð fimmta sætinu en endaði með því að deila efsta sætinu með Duke. Alla greinina má lesa [v+]http://www.umterps.com/sports/m-baskbl/spec-rel/102010aaa.html[v-]hér[slod-]