21 okt. 2010Helgina 23.-24. október verður haldið námskeið fyrir dómara í þriggja dómarakerfinu. Námskeið þetta er opið öllum dómurum og verður það bæði bóklegt og verklegt. Þriggja dómara kerfið er notað í flestum aðildarlöndum FIBA í dag og stefnt er að notkun þess í efstu deild karla á Íslandi í framtíðinni og er þetta námskeið fyrsta skrefið í þá átt. Haldinn verður fyrirlestur fyrir dómara þar sem farið verður yfir bókleg gögn og vídeó verða sýnd. Námskeiðið endar svo á verklegum æfingum á fjölliðamóti sömu helgi þar sem þrír dómarar munu dæma leiki í mótum yngri flokka.