21 okt. 2010Í kvöld fara fram tveir leikir í mótahaldi KKÍ. Í 1. deild karla fer fram einn leikur á Egilsstöðum þar sem heimamenn í Hetti taka á móti nýliðum Leiknis. Bæði lið hafa tapað fyrstu tveim leikjum sínum í vetur og því mikilvægur leikur fyrir bæði lið í kvöld og ljóst að annað þeirra nær í sinn fyrsta sigur í ár. Á morgun fara svo fram þrír aðrir leikir í 1. deildinni. Leikurinn í kvöld hefst kl. 18.30 og verður í beinni tölfræðilýsingu á kki.is Í keppni B-liða eigast svo við Haukar og Grindavík að Ásvöllum og hefst sá leikur kl. 20.45.