16 okt. 2010Í dag fer fram einn leikur í Iceland Express-deild kvenna. Grindavík tekur á móti íslandsmeisturum KR í Röstinni og hefst leikurinn kl. 16.00 og er öllum boðið á leikinn sér að kostnaðarlausu í boði Northern Light Inn. Að auki eru fjölliðamótin að fara af stað þessa helgi og eru haldin víða um land. Hægt er að sjá allt um þau á mótyfirliti KKÍ hér til hliðar, annaðhvort í valmynd undir „Mótayfirlit" eða með því að smella á mynd til hægri sem „Leikir og úrslit"