15 okt. 2010Í kvöld fara fram nokkrir leikir í 1. og 2. deild karla og svo er leikur í unglingaflokki karla. 1. deild karla FSu og Breiðablik eigast við í Iðu á Selfossi kl. 19.15. Skallgrímur fær svo Valsmenn í heimsókn í Borgarnes og hefst sá leikur kl. 20.00. Báðir þessi leikir verða í beinni tölfræðilýsingu hér á kki.is. 2. deild karla Reynir Sandgerði fá Knattspyrnufélag Vesturbæjar í heimsókn og ÍA og Smári eigast við á Akranesi. Báðir leikirnir hefjast 19.15. Einn leikur er í unglingaflokki karla, Snæfell/Skallagrímur tekur á móti liði Fjölnis í Stykkishólmi kl. 20.00.