13 okt. 2010Haukur Helgi og liðsfélagar í Maryland háskólanum eru núna á fullu við æfingar á undirbúningstímabilinu fyrir komandi átök. Keppnin í ACC-riðlinum hefst 8. nóvember hjá Maryland þegar liðið leikur gegn Seattle University. Áður munu þeir spila æfingaleik 1. nóvember gegn Florida Southern. Báðir þessir leiki verða á heimavelli Maryland, Collage Park. Myndband frá Maryland Maryland sendi KKÍ myndband fyrir skömmu þar sem síðasta ár er gert upp, allt frá upphafi til enda. Þar eru sýnd tilþrif í bland við stutt viðtöl og sýnd brot úr leikjum og er ferill liðsins rakinn, allt frá upphafi til enda tímabilsins í úrslitakeppninni eða "March Madness" eins og hún er kölluð. Hægt er að sjá myndbandið sem heitir [v+]http://www.kki.is/maryland.asp [v-]"What Ever It Takes" hérna[slod-]. Tímabilið 2010 hjá Maryland Maryland féll út í annari umferð eftir jafnan og spennandi leik gegn Michigan State með tveimur stigum 85:83, en Michigan State fór í undanúrslit og tapaði gegn Butler einnig með tveim stigum, 50:52. Butler fór svo í úrslit og tapaði einnig með tveim stigum fyrir Duke sem sýnir hversu jöfn úrslitakeppnin er en 65 bestu skólar landsins leika til úrslita ár hvert með útsláttarfyrirkomulagi.