12 okt. 2010
Í kvöld kl. 17.04 mun hefjast leikur Solna Vikings og Sundsvall Dragons í beinni á netinu sem er ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að þar verða þrír Íslendingar í eldlínunni. Logi Gunnarsson er á sínu fyrsta ári með Solna Vikings, sama liði og Helgi Már Magnússon lék með á síðasta ári. Í liði Sundsvall er besti evrópski leikmaður deildarinnar á síðasta ári, Jakob Örn Sigurðarson, og honum til halds og traust hefur nú bæst í hópinn besti leikmaður Iceland Express-deildarinnar á síðasta ári, Hlynur Bæringsson. Leikurinn hefst eins og áður segir um kl. 17.04 að íslenskum tíma og tengill á hann er hér að neðan: [v+]http://www.svenskbaskettelevision.se/ [v-] Solna Vikings · Sundsvall Dragons[slod-] Helgi Magnússon er einnig að spila með Uppsala og er sá leikur sýndur beint [v+]http://www.svenskbaskettelevision.se/news_show_ocksa-pa-webbtv-jamtland-vs-uppsala.html?id=10724422[v-]hér[slod-]