8 okt. 2010Í gærkvöldi fór fram æfingaleikur Barcelona og LA Lakers á Spáni sem er liður í Evróputúr NBA-deildarinnar. Barcelona náði að hefna ófaranna á undirbúningstímabilinu 2008 þegar Barcelona fór í heimsókn til LA Lakers þar sem þeir töpuðu, því í gær unnu þeir 92:88. Pau Gasol var með 25 stig fyrir gestina en Juan Carlos Navarro var einnig með 25 stig fyrir heimamenn. Hægt er að sjá [v+]http://www.nba.com/video/games/lakers/2010/10/07/0011000024_lal_bar_recap.nba/?ls=iref:nbahpt1 [v-]svipmyndir úr leiknum[slod-].