7 okt. 2010Í kvöld er komið að upphafi deildarinnar 2010-2011 hjá körlunum. Þrír leikir eru á dagskránni í kvöld og verða tveir þeirra sýndir á netinu, heimaleikir KR og KFÍ. Þessi félög munu í vetur sýna alla sína leiki líkt og síðustu tímabil sem er frábært framtak. Eins og áður er leiktími kl. 19.15 á leikjum í Iceland Express-deild karla. Leikir kvöldsins: Keflavík · ÍR KR · Stjarnan (beint á kr.is/karfa) KFÍ · Tindastóll (beint á kfi.is) Einn leikur fer svo fram í 1. deild karla en Höttur tekur á móti Skallagrím kl. 18.30.